Sindri Kristjánsson skrifar
Í talsvert einfaldaðri mynd má segja að heilbrigðiskerfið íslenska eigi sér fjórar stoðir. Heilsugæsla, sjúkrahúsþjónusta, sérfræðiþjónusta og öldrunarþjónusta. Þrjár af þessum fjórum stoðum eiga undir verulegt högg að sækja á Akureyri og svar ríkisstjórnarinnar, ábyrgðaraðila kerfisins, virðist vera að fela einkafyrirtæki að leysa vandann.
Á síðasta kjörtímabili var tekin ákvörðun hjá Akureyrarbæ að skila rekstri öldrunarheimila bæjarins til ríkisins, eftir áralanga meðgjöf úr bæjarsjóði með verkefninu sem sannanlega er á ábyrgð ríkisins. Þetta gerðu á sama tíma fjölmörg sveitarfélög sem voru í sömu stöðu, þ.e. sveitarfélög sem sáu um rekstur öldrunarheimila í sinni sveit gegn framlögum frá ríkinu sem engan vegin duguðu til að halda rekstrinum réttu megin við núllið.
Vestmannaeyjar, Norðurþing, Fjarðabyggð, Höfn í Hornarfirði gerðu öll þetta sama og Akureyri, svo einhver dæmi séu tekin. Og á öllum þessum stöðum brást ríkið við með því að sameina reksturinn við rekstur þeirrar heilbrigðisstofnunar sem ríkið rak á sama stað. Nema á Akureyri. Þar var rekstur öldrunarheimila Akureyrar afhentur fyrirtækinu Heilsuvernd. Höfundi er ekki kunnugt um að útboð hafi farið fram áður en þessi ákvörðun var tekin.
Heilsugæsla á Akureyri hefur frá árinu 2014 verið rekin undir hatti Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, HSN. Fyrir mörgum árum síðan var orðið morgunljóst að húsakostur þessarar heilsugæslustöðvar, sem þjónustar hátt í 30.000 manns, var hvorki sjúklingum né starfsfólki bjóðandi. Og tekin var ákvörðun um að færa reksturinn í nýtt húsnæði, tvær heilsugæslustöðvar. Annarri var fundinn staður norðan megin í bænum og hinni var ætlaður staður sunnan megin í bænum.
En núna, þegar á hólminn er komið, er komin upp sú staða að aðeins önnur af tveimur staðsetningum virðist raunverulega vera á dagskrá. Fullkomin óvissa er uppi um afdrif stöðvarinnar sem ætluð var staðsetning sunnan megin í bænum eftir að hætt var við útboð á smíði húsnæðisins sem átti að hýsa hina nýju stöð. En þrátt fyrir það berast okkur fréttir af því að fyrirtækið Heilsuvernd hyggi á að reka heilsugæslustöð í bænum. Jafnframt eru okkur fluttar fréttir af því að þetta sama fyrirtæki sé byrjað að ráða til sín starfsmenn sem áður störfuðu við heilsugæslulækningar hjá HSN.
Sjúkrahúsþjónustu á Akureyri er sinnt á gamla fjórðungssjúkrahúsinu, Sjúkrahúsinu á Akureyri. Fjölmiðlar hafa með reglubundnum hætti flutt okkur fréttir af þeim rekstrarerfiðleikum sem ógna starfsemi sjúkrahússins. Með viljann að vopni getur hver sá sem það vill fundið a.m.k. eina frétt í hverjum mánuði, mörg ár aftur í tímann, af rekstrarerfiðleikum sjúkrahússins á Akureyri. Vandinn er ýmist tengdur húsnæðismálum, fjárskorti, manneklu eða óheyrilegu álagi á starfsfólk. Nýlega voru fluttu fjölmiðlar okkur þá fregn að til þess að ráðast að mönnunarvanda á bráðamóttöku sjúkrahússins á Akureyri hafi spítalinn gengið til samninga við, og haldið ykkur nú fast, fyrirtækið Heilsuvernd um einhverskonar starfsmannaleigu á læknum til að takast á við þennan mönnunarvanda.
Þegar allt framangreint er samantekið teiknast upp mynd af einu fyrirtæki sem er hægt og bítandi að taka yfir veitingu heilbrigðisþjónustu í bænum að stóru leyti. Án þess að nokkuð samráð við bæjarbúa hafi farið fram og algjörlega á skjön við vilja mikils meirihluta þeirra sem þjónustuna nota. Íslendingar, og þar með Akureyringar, eru þegar öllu er á botninn hvolft upp til hópa sammála um það að hið opinbera eigi að reka sjúkrahús og heilsugæslu, en þetta kom skýrt fram í þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í mars 2021. Þar sögðust 67,6% Íslendinga telja að ríkið ætti að reka heilsugæslu. Í sömu könnun sögðu 81,3% Íslendinga að ríkið ætti að reka sjúkrahús. Vilji þjóðarinnar í þessum efnum er því nokkuð afdráttarlaus.
Eitthvað er að eiga sér stað varðandi rekstur heilbrigðiskerfisins á Akureyri. Dropinn holar steininn segir máltækið. Maður fær á tilfinninguna að dropateljarinn sé kominn á loft og undir sé opinbera heilbrigðisþjónustan í bænum. Og markmiðið alger kollsteypa að því er virðist.
Sindri Kristjánsson er varabæjarfulltrúi og í stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðis- og öldrunarmál.
UMMÆLI