MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

KLAK heldur kynningarfundi á Akureyri á morgun, 2. október

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
baendabladid-3-859×1024
kaffid.is

Félagið KLAK – Icelandic Startups er í kynningarferð um landið eins og er og heldur kynningarfundi á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 2. október. Kynningarfundur um viðskiptahraðalinn Startup Tourism verður haldinn kl. 12:00 á morgun á Berjaya hótelinu en kynningarfundur um frumkvöðlakepnnina Gulleggið á Strikinu kl. 17:00.

KLAK er óhagnaðardrifið félag í eigu HÍ, HR, Origo, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Félagið setur upp viðskiptahraðla, vinnusmiðjur og fleira með það að markmiði að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla hér á landi og fjölga sprotafyrirtækjum. Markmið ferðarinnar sem nú stendur yfir er að kynna starfsemi KLAK með sérstakri áherslu á frumkvöðlakepnnina Gulleggið og viðskiptahraðalinn Startup Tourism sem hefur verið endurvakinn eftir 5 ára dvala. Verkefnastjórar KLAK, Kolfinna Kristínardóttir, Jenna Björk Guðmundsdóttir og Ísey Dísa Hávarsdóttir halda viðburðinn.

Skráning á fundina á morgun fer fram hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026