Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögur kjörstjórnar að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir fyrir komandi alþingskosningar þann 28. október nk. Tíu kjördeildir verða á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey.
Á Akureyri verður kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Í Hrísey verður kjörstaður í Hríseyjarskóla.
Í Grímsey verður kjörstaður í Grímseyjarskóla.
Kjörfundir munu standa frá kl. 09:00 til kl. 22:00 næstkomandi laugardag.
UMMÆLI