Kjörstaðir á Akureyri
Eftir Óðinn Svan·

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 29. október. Kjörstaðir í Akureyrarkaupstað eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla Grímsey. Akureyrarkaupstað verður skipt í 12 kjördeildir, 10 á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey.
Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu og eru kjósendur beðnir um að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Kjörfundur hefst á Akureyri, í Hrísey og í Grímsey klukkan 9.00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22.00.
Hér að neðan má svo sjá krækjur með nánari upplýsingum um kjörstaði og upplýsingar um kjördeildir eftir götuheitum
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










