Kjörsókn í Akureyrarbæ komin yfir 50%

Klukkan 20:00 í dag var kjörsókn komin í 52,89% í Akureyrarbæ. Þá höfðu 7886 manns kosið, en alls eru 15.547 á kjörskrá. Í dag hefur kjörsókn á Akureyri verið uppfærð reglulega á vef Akureyrarbæjar og verður áfram þessar síðustu klukkustundir sem eftir eru, en kjörfundi lýkur klukkan 22:00. Ætla má að helmingskjörsóknin hafi þó náðst stuttu eftir klukkan sjö, en kjörsókn klukkan 19:00 var 49,96%.
Kjörfundum lauk öllu fyrr í Hrísey og Grímsey í dag, en meðan þetta er skrifað eru atkvæði eyjaskeggja enn á leið til kjörstjórnar. Atkvæði úr Hrísey lögðu af stað með Hríseyjarferjunnni Sævari klukkan 19:00. Fulltrúar kjörstjórnar sóttu atkvæðin á Árskógssandi og keyrðu þaðan til Dalvíkur, þar sem atkvæði Grímseyinga biðu í fangaklefa á lögreglustöðinni. Útgerðarmaðurinn og skipstjórinn Bjarni Reykjalín Magnússon sigldi með atkvæðin í land fyrr í dag, þar sem lögreglan á Dalvík tók við þeim.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










