MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Kíktu á stífbónaða stálfáka við Menningarhúsið Hof á morgun

Eftir María Hjelm·
482013708_1105047948091959_8875298267846036912_n
Mynd: Axel Þórhallsson· kaffid.is

Félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hittast á miðvikudagskvöldum við Menningarhúsið Hof og bjóða bæjarbúum og gestum að skoða þar stífbónaða stálfáka 25 ára og eldri. Líklega er um áratugur síðan félagar í fornbíladeildinni byrjuðu að hittast, fyrst við Ráðhústorg en síðar við Menningarhúsið Hof.

Næsti viðburður er miðvikudaginn 8. júlí. Eigendur fornbíla sem ekki eru í klúbbnum eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi klúbbsins.

Dagskrá:
20.00 – Mæting fornbíla við Menningarhúsið Hof
20.15 – Rúntur forbíla um miðbæinn
20.30-22.00 – Fornbílasýning við Menningarhúsið Hof

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026