MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Kiddi Torfa gefur út nýtt lag

Eftir Ingólfur Stefánsson·
kidditorfa
kaffid.is

Kristinn Már Torfason hefur gefið út lagið Regnbogi undir nafninu Kiddi Torfa. Lagið er það fyrsta af plötu sem hann stefnir á að gefa út á næstunni.

Kristinn segir að hann hafi samið mikið af lögum og textum frá unglingsaldri en að hann hafi ekki haft aðstæður, kunnáttu eða fjármagn til þess að vinna þau fyrr en nú.

„Með hjálp gervigreindarinnar hefur opnast nýr heimur möguleika fyrir einstaklinga eins og mig. Ég hef fyrst og fremst unnið þetta bara fyrir sjálfan mig og verið feiminn við að koma þessu á framfæri. Ég starfaði í mörgum hljómsveitum þangað til ég fór að vinna með fötluðum 1988 en síðan þá hefur það tekið allan minn tíma þó ég noti mér að semja til að vinna fyrst og fremst með sjálfan mig. Rútuslys sem ég lenti í 2023 ásamt samstarfsmönnum mínum fékk mig til að staldra við og huga meira að fleiri hlutum sem gleðja mig en vinnuna og eftir úrvinnslu þeirrar lífsreynslu þá fór boltinn að rúlla,“ segir Kristinn.

Hann segir að lagið passa vel á hinsegindögum og að það fjalli um nauðsyn þess að skilja að við séum öll ólík og að við þurfum á fjölbreytileikanum að halda.

Lagið heitir Regnbogi og er undir listamansnafninu KiddiTorfa á öllum helstu streymisveitum.

https://open.spotify.com/album/1NTx8buuPArQ6LA78coaUs?si=3ed753684ba74921

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026