Framsókn

Keyptu allan tækjabúnað úr þrotabúi N4 og ætla sér stóra hluti í þáttagerð fyrir vefsjónvarp

Keyptu allan tækjabúnað úr þrotabúi N4 og ætla sér stóra hluti í þáttagerð fyrir vefsjónvarp

Hjónin Jóhanna Ásdís Baldursdóttir og Örlygur Hnefill Örlygsson, hóteleigendur á Húsavík keyptu í vikunni allan tækjabúnað úr þrotabúi fjölmiðlafyrirtækisins N4 ehf.. N4 óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í byrjun febrúar á þessu ári eins og greint hefur verið frá. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins.

Að sögn Örlygs hafa þau hjónin bæði mikinn áhuga á kvikmynda og sjónvarpsgerð. Þau hafa um nokkurra ára skeið framleitt þætti og kynningarefni undir merkjum Film Húsavík. Kaupin á tækjabúnaði sjónvarpsstöðvarinnar sálugu verður liður í að útvíkka starfsemi Film Húsavík í samstarfi við aðra. 

Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikublaðsins sem kemur út á föstudag.

VG

UMMÆLI

Sambíó