Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Keypti gamlan skólabíl á eina krónu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
messenger_creation_b63ac6f2-8e2d-4d83-adae-93d398dd2184
Páll B. Guðmundsson, fyrrverandi eigandi bílsins, og Benedikt Barðason skólameistari. Mynd: VMA.is.· kaffid.is

Benedikt Barðarson, skólameistari VMA, festi kaup á gömlum skólabíl fyrir hönd VMA á eina krónu á dögunum. Seljandinn var Páll B. Guðmundsson, svæðisstjóri hjá Hringrás á Akureyri. Bíllinn er nú kominn í kennslurými bifvélavirkjunar í VMA þar sem ætlunin er að hann gangi í endurnýjun lífdaga á komandi mánuðum og árum. Fjallað er um þetta á vef VMA í dag.

Ásgeir Bragason kennari í bifvélavirkjun, segir á vef VMA að hér séu í það minnsta slegnar tvær flugur í einu höggi, að nemendur fái tækifæri til þess að kynna sér og þjálfast í viðgerðum á öllum mögulegum og ómögulegum þáttum í bíl og um leið sé sögu þessa merka bíls til haga haldið og hann gangi í endurnýjun lífdaga.

Þessi rússneski bíll af gerðinni UAZ-452 þjónaði m.a. sem skólabíll í Fnjóskadal. Nýskráningardagur bílsins var 1. apríl 1982, fyrir rúmum 44 árum, og eigandi hans lengst af var Kristján Ingvar Jóhannesson (1952-2023) á Hróarsstöðum í Fnjóskadal. Bíllinn var afskráður 5. apríl 2001.

Ítarlega umfjöllun um sögu bílsins og söguna á bakvið það hvernig hann endaði að lokum í VMA má lesa á vef skólans með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 2. október 2026