Kertafleyting við Leirutjörn
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Árlega er kertafleyting við Leirutjörn til þess að minnast þess er sprengjan féll á Hírósíma. Engin breyting er þetta árið og fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 22:00 verður fleytt kertum á Leirutjörn en þá eru 81 ár liðið frá atburðinum. Hluti af kertasölunni mun svo renna til Vonabrúar sem styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa.
„Aldrei skal gleyma Hírósíma og Nagasakí. En líka standa með fórnarlömbum yfirstandandi árásarstríða – og mótmæla sívaxandi helsprengjuvá. Ákall flytur Hannes Sigurðsson lagerstarfsmaður og friðarsinni. Hluti af kertasölu rennur til Vonarbrúar,“ segir í tilkynningu frá samstarfshóp um frið á Akureyri.
Hlekkur á Facebook-viðburð.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










