KEA selur eignarhlut sinn í Samkaupum

KEA hefur selt allt hlutafé sitt í Eignarhaldsfélaginu Bjarma ehf. en það félag hefur haldið utan um 5% eignarhlut í matvörukeðjunni Samkaup hf. KEA hefur átt þennan eignarhlut í að verða 10 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu KEA.

„KEA fékk tilboð í hlut sinn frá SKEL fjárfestingafélagi sem það taldi sig ekki getað hafnað. KEA er að einfalda eignasafn sitt í samræmi við þá stefnu að fækka en um leið að stækka þau verkefni sem félagið er með á efnahagsreikningi sínum,“ segir í tilkynningunni.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!