MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hátíðin Kátir dagar í Langanesbyggð hefst í dag

Eftir María Hjelm·
743817651_1017396491046809_5387774436230219586_n-1
kaffid.is

Kátir dagar eru árleg bæjarhátíð á Þórshöfn sem hefur um árabil verið einn af hápunktum sumarsins fyrir íbúa og gesti. Markmið hátíðarinnar er að lífga upp á samfélagið, skapa skemmtilega samveru og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í ár verður hátíðin haldin dagana 15.-19. júlí.

„Undirbúningurinn hefur staðið yfir í nokkra mánuði og í ár höfum við lagt mikla áherslu á að bjóða upp á fjölbreytta viðburði þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á dagskránni eru meðal annars fjölskylduskemmtun, tónlist, íþróttaviðburðir, ratleikur, Color Run, músíkbingó, dansleikur og margt fleira,“ segir Birta Rún Ásgeirsdóttir, skipuleggjandi hátíðarinnar.

Kátir dagar eru fyrst og fremst tækifæri til að koma saman.

„Það sem gerir Káta daga svo sérstaka er fyrst og fremst stemningin. Fólk kemur saman, bærinn skartar sínu fegursta og bæði heimafólk og brottfluttir hittast á ný. Hátíðin snýst ekki bara um dagskrána heldur líka um samveruna og það að njóta þess að vera saman,“ segir Birta.

Hér má finna nánari upplýsingar um hátíðina.

„Við hlökkum mikið til að taka á móti öllum og vonum að sem flestir leggi leið sína til Þórshafnar til að njóta Kátra daga með okkur. Það verður sannarlega eitthvað fyrir alla.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026