Karl Liljendal Hólmgeirsson úr Miðflokknum tekur í dag sæti á Alþingi fyrir. Karl eru 20 ára og 355 daga gamall og verður því yngsti aðili frá upphafi sem sest á þing hér í landi.
Karl byrjaði í pólitíkinni á Akureyri fyrir um það bil tveimur árum þegar hann tók að sér stöðu varaformanns í Félagi ungra framsóknarmanna á Akureyri. Karl gekk síðar til liðs við Miðflokkinn.
Hann stundar nám við Verkmenntaskólann á Akureyri á viðskipta- og hagfræðibraut. Hann var í þriðja sæti á lista Miðflokksins í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri í maí.
UMMÆLI