Karl Frímannsson hefur verið ráðinn tímabundið sem aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar, menntamálaráðherra, í fjarveru Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur sem er í fæðingarorlofi. Karl starfaði hjá Akureyrarbæ, fyrst sem fræðslustjóri og síðar þróunarstjóri en áður var hann skólastjóri Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit í þrettán ár.
Árin 2014-2016 gegndi Karl starfi sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og frá árinu 2016 hefur hann unnið sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði menntamála. Karl hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir félög og stofnanir, m.a. sat hann í stjórn Leikfélags Akureyrar 2002-2008 og var stjórnarformaður Hofs menningarfélags frá 2008-2012. Karl lauk meistaraprófi í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 en áður lauk hann prófi í íþróttafræðum við Íþróttaháskóla Noregs árið 1992.
UMMÆLI