Karen Hulda skoraði sitt fyrsta mark í sigri Þór/KA
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Knattspyrnulið Þór/KA vann í gær góðan sigur á Fram í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Með sigrinum fer Þór/KA upp í sjöunda sæti deildarinnar og er nú einu stigi frá efri hluta deildarinnar og Fram sem er í sjötta sætinu.
Karen Hulda Hrafnsdóttir og Erin Flurey skoruðu mörk Þór/KA í 2-0 sigri. Þetta var fyrsta mark hinnar 17 ára Karenar fyrir Þór/KA en hún skrifaði undir sinn fyrsta samning við liðið í lok júlí.
„Þetta var mjög góð tilfinning. Arna lagði upp markið sem var geggjað,“ sagði Karen Hulda í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, sem spilar með Kareni í miðverðinum, var að spila sinn 300. leik lagði upp markið í sínum 310. leik fyrir Þór/KA.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










