Kappahl opnar á Glerártorgi 

Sænska tískuvörumerkið Kappahl heldur áfram uppbyggingu sinni á Íslandi með opnun nýrrar verslunar á Glerártorg á Akureyri. Opnunin fer fram á laugardaginn kl. 12:00 og markar mikilvægt skref í að gera vörumerkið aðgengilegra fyrir viðskiptavini út um allt land. Verslunin mun bjóða uppá allar vörulínur Kappahl; dömu-og undirfatnað, barnafatnað, herrafatnað og auðvitað krúttlega lífstílsvörumerkið Newbie 

Opnunin er liður í áframhaldandi innleiðingu Kappahl á íslenskan markað eftir afar vel heppnaða opnun fyrstu verslunarinnar í Smáralind, þar sem þúsundir gesta mættu og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum.

„Við erum gríðarlega ánægð með þær móttökur sem Kappahl hefur fengið hingað til. Það er ljóst að okkar frábæru viðskiptavinir kunna vel að meta samsetninguna af skandinavískri hönnun, góðum gæðum og hagkvæmu verði,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi.

Newbie hefur notið mikilla vinsælda á Norðurlöndum og í Bretlandi og er þekkt fyrir tímalausa hönnun, mjúkar línur og áherslu á náttúruleg efni.

Mikilvægt skref 

Opnun verslunarinnar á Glerártorgi markar mikilvægt skref í að þjónusta betur viðskiptavini á landsbyggðinni.

„Það er okkur mjög mikilvægt að ná til viðskiptavina um allt land. Með opnuninni á Akureyri erum við að taka stórt skref í þá átt að gera Kappahl aðgengilegt fyrir alla landsmenn, en Norðlendingar hafa fjölmennt hingað árum saman,“ segir Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi.

Sterk fjölskylduverslun með skandinavísk gildi

Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og er í dag eitt af leiðandi tískuvörumerkjum á Norðurlöndum með yfir 340 verslanir í Evrópu. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á sjálfbærni, meðal annars með notkun lífrænnar bómullar, rekjanleika í framleiðslu og ábyrg vinnubrögð í allri virðiskeðjunni.

Verslanir Kappahl bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn, allt frá sígildum grunnflíkum til tískufatnaðar og undirfatnaðar – á aðgengilegu verði.

Samhliða opnun verslunarinnar geta viðskiptavinir einnig verslað í gegnum netverslunina kappahl.is, sem er opin allan sólarhringinn.

Uppbygging um allt land

Opnun verslunarinnar á Akureyri er hluti af stærra uppbyggingarferli þar sem stefnt er að því að opna alls átta Kappahl-verslanir og að minnsta kosti eina Newbie-verslun á Íslandi á næstu misserum.

„Við erum rétt að byrja. Það eru spennandi tímar framundan og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Kappahl og Newbie sem sterk og traust vörumerki á Íslandi,“ segir Albert að lokum.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!