Kælismiðjan Frost og TG raf hafa náð samkomulagi um sölu þess síðarnefnda og er hluti kaupverðs greiddur með hlutafé í Frost. Þetta segir í tilkynningu á heimasíðu Frost, þar sem segir að með kaupunum myndist breiður og sterkur eigendahópur beggja félaga og að samstæðan verði ein sú öflugasta á sviði kælitækni, rafbúnaðar og sjálfvirkni á Íslandi. Hjá félögunum munu starfa alls 100 manns á starfstöðvum á Akureyri, Grindavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Selfossi og Kolding í Danmörku.
Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, mun taka við framkvæmdastjórn TG raf en að öðru leyti mun Tómas Guðmundsson stýra starfseminni sem fyrr. Í tilkynningu segir: „Félögin munu taka sér þann tíma sem þarf til að samþætta starfsemi beggja félaga og tryggja viðskiptavinum bestu þjónustu áfram sem áður fyrr.“
„Í yfir 30 ár hefur Kælismiðjan Frost sérhæft sig og verið í fararbroddi í kæli- og frystitengdum iðnaði fyrir matvælaiðnaðinn með það að markmiði að skila framleiðendum og neytendum betri nýtingu og ferskara hráefni. Á tímum mikillar þróunar í sjálfvirkni og upplýsingatækni hefur markmið Frost síðustu fimm ár verið að byggja upp og efla félagið á sviði rafmagns, stýringa og sjálfvirkni.
TG raf er alhliða rafverktaki sem hefur í yfir 20 ár boðið upp á faglega viðhaldsþjónustu og breytingar í skipum ásamt þjónustu rafbúnaðar fyrir útgerðir, verksmiðjur, byggingarverktaka og önnur fyrirtæki með yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á sviði iðnaðar og sjálfvirkni,“ segir í tilkynningu. Þar segir einnig:
„Samstarf félaganna mun mynda stoðir undir enn sterkari einingu á sviði kælitækni, rafbúnaðar og sjálfvirkni með aukinni sérþekkingu, slagkrafti og þjónustustigi við viðskiptavini beggja félaga. Saman geta fyrirtækin boðið upp á mun víðtækari og fjölbreyttari þjónustu á öllum sviðum starfseminnar þar sem hlúð verður að kjarnastarfsemi beggja fyrirtækja sem stefnt er á að auka og efla til framtíðar.
Fyrr á árinu náði Frost samningi við japanska framleiðandann Yaskawa um dreifingar og umboð á þeirra vörum á Íslandi, þar á meðal iðntölvubúnaði, hraðabreytum, robotum og fleira sem mun styrkja Frost og TG raf í þróun og þjónustu verkefna til framtíðar.“
„Það er búið að vera afar ánægulegt ferli síðan í vor að kynnast eigendum TG raf og finna að hjá þeim býr mikil reynsla og þekking sem að passar afar vel við hugmyndafræði okkar um aukinn fókus á rafmagns og sjáfvirknisvið til að auka við þjónustustigið hjá okkar viðskiptavinum. Að sama skapi mun reynsla og þekking Frost nýtast viðskiptavinum TG raf,“ segir Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost.
„Það er okkur tilhlökkunarefni að kynnast starfsfólki TG raf betur og efla okkur saman í starfi,“ segir Guðmundur.
UMMÆLI