KA vígir nýju stúkuna síðar í mánuðinum

KA ætlar að vígja nýja stúku síðar í mánuðinum og eftir ár verður ásýnd svæðisins orðin allt önnur. Þetta kemur fram á vef Vísi í dag.
Þar segir að stúkan við fótboltavöllinn verði fyrst tekin í notkun þegar KA tekur á móti nágrannaliði Þórs í Akureyrarslag þann 27. júlí næstkomandi. Stefnt er svo að því að mannvirkið verði fullklárað og afhent til KA í júlí á næsta ári.
Stefán Árni Pálsson ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um uppbygginguna sem er að eiga sér stað á KA svæðinu. Hér má horfa á innslagið í heild sinni.
„Þetta mun breyta öllu fyrir okkur, öllum rekstrinum eins og við þekkjum KA í dag. Við höfum verið að glíma við vandamál með búningsklefa og aðra aðstöðu. Hér erum við að fá flotta lyftingaraðstöðu, veitingasal til að taka á móti gestum og aðkomuliðum. Þetta verður ekkert sama félagið og hefur verið síðustu ár, þegar þetta verður klárt eftir nokkra mánuði,“ segir Sævar meðal annars í innsalginu á Vísi.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










