MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

KA vann fyrsta heimaleik sumarsins

Eftir Jónatan Friðriksson·
1475111728_ka
kaffid.is

KA menn spiluðu sinn fyrsta heimaleik í Pepsi deildinni í sumar þegar ÍBV komu í heimsókn á Akureyrarvöll.

Mikil stemning og góð umgjörð var fyrir leik hjá stuðningsmönnum KA, og ekki skemmdi veðrið á Akureyri í dag fyrir.

Leikurinn fór vel af stað þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður á vellinum en Akureyrarvöllur er langt frá því að vera tilbúinn. En á 20. mín dróg til tíðinda þegar Elvar Árni kom heimamönnum yfir eftir flottan undirbúning hjá KA mönnun og hélst staðan 1-0 fram að hálfleik.

KA bættu svo við öðru marki á 55. mín þegar Ásgeir Sigurgeirsson skoraði eftir hornspyrnu heimamanna. Ekki voruð skoruð fleiri mörk í leiknum og fyrsti sigur KA manna í sumar því staðreynd 2-0.

Næsti leikur KA er gegn FH á fimmtudaginn kemur í Hafnarfirði.

Liðin kominn út á völl ⚽️ pic.twitter.com/a3UBLoT4Eq — KA (@KAakureyri) May 12, 2018
👏🏻 Þökkum þeim stuðningsmönnum sem lögðu leið sína á völlinn í dag. Vonumst til að sjá ykkur aftur á næsta heimaleik.⚽️ pic.twitter.com/bNwwwXgt9B — KA (@KAakureyri) May 12, 2018

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026