Samtök íþróttafréttamanna hafa tilkynnt hvaða einstaklingar fengu flest atkvæði í kjöri á íþróttamanni ársins árið 2021. Rut Arnfjörð Jónsdóttir, handknattleikskona hjá KA/Þór á Akureyri, er á meðal tíu efstu í kjörinu.
Einnig er kosið um þjálfara og lið ársins 2021 en KA/Þór, sem varð fjórfaldur meistari í handknattleik kvenna tímabilið 2020-21, er eitt af þremur liðum sem kemur til greina í kjörinu á liði ársins. Kjörið fer nú fram í 66. skipti en samtökin hafa kosið íþróttamann ársins samfleytt frá árinu 1956.
Úrslitin verða tilkynnt 29. desember næstkomandi.
Nánar má lesa um tilnefningarnar á vef RÚV með því að smella hér.
UMMÆLI