Handboltalið KA/Þór gerði góða ferð að Hlíðarenda í kvöld og sótti dýrmætt stig eftir 23-23 jafntefli gegn toppliði Vals í Reykjavík.
KA/Þór er áfram í 3. sæti Olís deildarinnar eftir leikinn með 8 stig eftir sex leiki, einu stigi á eftir toppliði Vals.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir var markahæst í leiknum með 9 mörk fyrir KA/Þór
„Barátta liðsins var til fyrirmyndar og ljóst að stelpurnar geta náð ansi langt í vetur,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu KA eftir leikinn.
UMMÆLI