Handboltalið KA/Þór gerði sér lítið fyrir og tryggði sæti sitt í úrslitaleik Coca Cola bikarsins í fyrsta sinn eftir sigur á Haukum í Laugardalshöllinni í gær.
Leikurinn var æsispennandi en KA/Þór vann að lokum 22:21 sigur og mætir Fram í úrslitaleik keppninnar.
Martha Hermannsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir voru markahæstar í liði KA/Þór með 4 mörk hvor.
Martha var hæstánægð eftir sigurinn. „Þetta er draumur með mínu uppeldisfélagi. Við erum þrjár hérna sem höfum spilað í tugi ára, ég er á þriðja tug held ég. Þetta er rúsínan í pylsuendanum að komast í úrslit,“ sagði hún eftir leik
UMMÆLI