KA/Þór í annað sætið eftir glæsilegan sigur
Eftir Ingólfur Stefánsson·

KA/Þór unnu frábæran sigur á Stjörnunni í Olísdeild kvenna í handbolta í gærkvöldi. KA/Þór voru með 14:8 forskot í hálfleik og unnu leikinn að lokum 23:19.
Sólveig Lára Kristjánsdóttir átti góðan leik fyrir KA/Þór og skoraði hún níu mörk og þá skoraði fyrirliðinn Martha Hermannsdóttir sex.
Með sigrinum fór KA/Þór upp í annað sæti deildarinnar þar sem liðið er með sex stig, tveimur minna en Íslandsmeistarar Fram á toppnum.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










