Akureyri og KA töpuðu bæði sínum leikjum í Olís deild karla í hanbolta í gær.
Akureyri tapaði gegn Fram í æsispennandi leik 26:25 þar sem Akureyri fékk tækifæri til að jafna leikinn á loka sekúndunum en mistókst.
Ihor Kopyshynskyi skoraði 6 fyrir Akureyri og í liði heimamanna í Fram skoraði Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 7 mörk.
KA tapaði einnig en þeir töpuðu nokkuð örugglega gegn Stjörnunni 31:21.
Egill Magnússon skoraði 11 mörk og Leó Snær Pétursson gerði 5 fyrir heimamenn í Stjörnunni. Fyrir KA skoraði Tarik Kasumovic 9.
Eftir umferðina sitja liðin í 7. og 10. sæti, stöðuna má sjá hér að neðan.
Næsti leikur KA verður laugardaginn 20. október þegar ÍR kemur norður í heimsókn. Daginn eftir, þann 21., koma ÍBV einnig í heimsókn noður og leika gegn Akureyri.
UMMÆLI