MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

KA og Akureyri með sigra

Eftir Jónatan Friðriksson·
9F3F5D1A48EEAB366B5F61AD78A904B5394A8BC1FC7F92DA81D1B0B5EBE57A73_713x0
kaffid.is

KA og Akureyri spiluðu sinn annan leik í gærkvöld í Grill 66 deildinni. Bæði lið spiluðu útileiki, KA heimsótti Mílan á Selfoss og Akureyri heimsótti ÍBV U í Vestmannaeyjum.

Leikur Mílan og KA endaði 22-26. Andri Snær Stef­áns­son var marka­hæst­ur hjá KA með 9 mörk, Sigþór Árni Heimisson skoraði 5 ásamt nýjasta leikmanni KA Ólafi Jóhanni Magnússyni sem skoraði 5 einnig.

Leikur ÍBV U og Akureyrar endaði 26-35. Brynj­ar Grét­ars­son var marka­hæst­ur hjá Akureyri með 11 mörk, Hafþór Vign­is­son skoraði 6 og Karol­is Strop­us 5.

Bæði lið hafa því unnið fyrstu tvo leiki sína í Grill 66 deildinni.
Næstu leikir liðanna fara fram 6. október, báðir á Akureyri, en þá leikur KA við Haukar U og Akureyri tekur á móti Mílan.

KA og Akureyri með sigra
Smelltu til að stækka

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026