Mynd: Knattspyrnufélag Akureyrar/Facebook

KA-menn tryggðu sér sæti í undanúrslitum

Það var frábær stemning í KA-heimilinu í gær þegar KA menn tóku á móti ÍBV í öðrum leik í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta. KA vann leikinn 25-24 og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum.

Dagur Gautason skoraði sigurmark leiksins í lok leiksins áður en Ágúst Elí Björgvinsson varði lokaskot Eyjamanna. Ágúst átti stórleik líkt og í fyrri viðureign liðanna í einvíginu þar sem KA vann úti í Vestmannaeyjum. KA vann því einvígið 2-0.

Dagur Gautason og Einar Birgir Stefánsson voru markahæstir hjá KA með fimm mörk hvor og Bjarni Ófeigur Valdimarsson var með fjögur mörk. Ágúst Elí varði nítján skot í marki KA, þar af þrjú víti.

KA mætir Val í undanúrslitum Olís-deildarinnar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!