KA mætir ÍBV í lokaleik Pepsideildarinnar í sumar í Vestmannaeyjum í dag. KA menn geta með sigri endað í 4. sæti deildarinnar sem yrði frábær árangur hjá nýliðunum.
KA stillir upp sterku liði í leiknum en athygli vekur að markmaðurinn ungi Aron Dagur Birnuson byrjar í markinu hjá KA.
KA menn urðu fyrir því óláni að það gleymdist að taka töskuna sem búningar þeirra eru vanalega geymdir í með til Vestmannaeyja. Brugðið var á það ráð að þeir myndu spila í varabúningum ÍBV.
Leikurinn hefst núna klukkan 14:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
KA liðið mun leika í varabúningum ÍBV dag þar sem búningataskan gleymdist á Akureyri í morgun. pic.twitter.com/vrUkbzL9F6
— KA (@KAakureyri) September 30, 2017
UMMÆLI