KA-menn eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta eftir sannfærandi 5-0 sigur á Hetti. Þórsarar eru úr leik eftir 4-2 tap gegn FH í Boganum.
Danijel Djuric og Bjarki Fannar Helgasson skoruðu áðir fyrir KA í sínum fyrsta keppnisleik fyrir félagið. Birgir Baldvinsson, Sveinn Margeir Hauksson og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoruðu einnig fyrir KA í stórsigrinum.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Þórsarar komust yfir gegn FH þegar Ragnar Óli Ragnarsson skoraði á 19. mínútu en næstu fjögur mörk gerðu FH-ingar. Aron Ingi Magnússon skoraði sárabótamark fyrir Þórsara í lok leiksins en úrslitin voru ljós.










