KA bar sigur úr býtum
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Eins og eflaust flestum er kunnugt nú þá sigraði KA Þór 3-0 í grannaslag í 24. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Með sigrinum fór KA upp úr fallsæti og er nú með 23 stig, Þór féll niður í fallsæti með 21 stig þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. Eftir markalausan og baráttumikinn fyrri hálfleik tryggði KA sér sigurinn með þremur mörkum í þeim síðari. Mörkin skoruðu Jakob Snær Árnason, Birgir Baldvinsson og Adam Ægir Pálsson. Leikurinn einkenndist af miklum hita þar sem þrettán gul spjöld fóru á loft en KA tókst betur að nýta færin sín á meðan Þórsurum gekk illa að skapa sér marktækifæri.
Tengdar greinar
Uppfært: 20. september 2026










