Júdódeild KA í júdótímariti í Frakklandi

Í nýjasta tölublaði franska júdótímaritsins L’Esprit du Judo (nr. 122, júlí/ágúst 2026) er fjögurra síðna umfjöllun um Júdódeild KA. Þetta kemur fram á vef KA en þar segir að greinin sé hluti af fastadálki þar sem heimsótt eru júdófélög á víðs vegar um heiminn.
Blaðamaðurinn Thomas Rouquette fylgdist með æfingum og gerir grein fyrir fjölgun iðkenda og fyrirhuguðum flutningi deildarinnar í nýja aðstöðu innan tveggja ára. Í greininni er rætt við Eirini Fytrou, yfirþjálfara, um þjálfunaraðferðir hennar og þá nálgun að hvetja foreldra til að æfa með börnum sínum. Þá fer Hans Rúnar Snorrason, stjórnarmaður, yfir sögu deildarinnar. Einnig er fjallað um verkefnið „Allir með“ þar sem rætt er við Katrínu Árnadóttur, móður hinnar tíu ára Ídu, sem æfir hjá deildinni í gegnum verkefnið, og hún lýsir gleðinni og jákvæðninni sem mætir dóttur hennar á æfingum. Greininni lýkur á samantekt um hið samfélagslega hlutverk sem Júdódeild KA sinnir, en tölublaðið er aðgengilegt á vefsíðu tímaritsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










