NTC

Juan Guardia Hermida semur við Þór

Juan Guardia Hermida semur við Þór

Í tilkynningu frá Þór kemur fram að knattspyrnudeild Þórs hefur samið við spænska varnarmanninn Juan Guardia Hermida um að leika með liðinu næstu tvö árin.

Juan er 22 ára gamall og hefur leikið á Íslandi undanfarin tvö ár með Völsungi og var í lykilhlutverki hjá Húsvíkingum þegar þeir fóru upp úr 2. deild síðasta sumar. Juan var meðal annars valinn í lið ársins hjá Fótbolta.net.

Hann fékk sitt knattspyrnulega uppeldi hjá spænska stórveldinu Atletico Madrid þar sem hann fór upp í gegnum allt barna- og unglingastarf til 18 ára aldurs.

Juan er fjölhæfur varnarmaður sem hefur skorað sjö mörk í 44 leikjum hér á landi. Hann æfði með okkar mönnum á dögunum áður en hann hélt heim til Spánar í jólafrí og mun mæta aftur til Akureyrar í byrjun febrúar.

Við bjóðum Juan velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó