Jónína Björg – „Verkin mín innihalda oft konur, náttúru, fjöru og þara“

Listakonan Jónína Björg Helgadóttir er fædd árið 1989 og býr og starfar á Akureyri. Jónína svaraði nokkrum spurningum um myndlistina, sköpunarferlið og framtíðina.
„Í minni list vinn ég mest í olíu á striga eða timbur, og með grafík, hvort sem það eru ætingar eða dúkristur. Verkin mín eru fígúratív og innihalda oft konur, náttúru, fjöru, þara og sterka liti,“ segir Jónína Björg.
En hvernig kviknaði áhugi þinn til að byrja með á myndlist?
„Ég hef ætlað að vera myndlistarmaður frá því að ég var í leikskóla. Ég er mjög hrifnæm og dett mikið í dagdrauma. Þegar ég var lítil gat ég eytt endalausum tíma liggjandi í grasinu að horfa á skýin eða með nefið ofan í berjalyngi uppi í móa. Ég elskaði að teikna og mála, og allt sem ég gat gert í höndunum. Mamma kenndi mér allt, að sauma, gera keramik, pappamassa, mósaík, gler… Ég elskaði það allt.“
Hverjir hafa haft mest áhrif á þig sem listamann?
„Sko. Klárlega mamma, hún Stefanía Sigmundsdóttir, því hún kenndi mér svo margt og sýndi mér hversu margt ég get gert. Í Myndlistaskólanum á Akureyri hafði ég svo mjög góða kennara og ég lærði líka rosalega mikið af samnemendum mínum. Eftir útskrift vorum við nokkur, bæði úr skólanum og ekki, sem stofnuðum listamannarekna rýmið Kaktus og önnur sem unnum saman að listaverkefninu RÓT… það hefur verið ómetanlegt að vinna með þessum snillingum. Svo myndi ég segja að sem mikilli dagdraumamanneskju sem getur auðveldlega týnt sér í sögum og ímynduðum heimum, að bækur hafi alltaf haft mikil áhrif á mig og mína list. Ég elska að lesa og gerði það stanslaust þegar ég var yngri. Bækurnar um Tinna fannst mér töfrandi, þær eru svo vel gerðar og líka fyndnar og litríkar. Bækur sem breyta veruleikanum eftir hentisemi eins og Harún og Sagnahafið eftir Salman Rushdie eða Hús andanna eftir Isabel Allande eru í uppáhaldi. Þær minna mig á drauma þar sem hlutirnir bara eru, en eru ekki endilega útskýrðir fyrir þér. Ég upplifi listaverkin mín einmitt sem sögur eða drauma sem fólk fær glugga inní. Svo auðvitað eru margir myndlistarmenn sem hafa heillað, t.d. Frida Kahlo, Hieronymus Bosch, allir Skagen málararnir og margir fleiri.“
Hvernig er sköpunarferlið hjá þér, frá hugmynd að fullunnu listaverki?
„Ég vinn mikið með sýningar sem heild. Þegar ég bóka sýningu hugsa ég rýmið fyrst og verkin inn í rýmið. Svo er að ákveða hvert skal haldið með hugmyndina í þetta sinn. Það tekur mig oftast svolítinn tíma að samræma hvað hendurnar á mér langar að gera og hvað er að veltast um í hausnum á mér. Ég fer mjög oft í langa göngutúra, langa bíltúra eða leggst við læk (best) til að reyna að komast að því hvað er að veltast um í undirmeðvitundinni og hvernig það vill komast út. Og þegar ég er búin að ganga eða keyra eða liggja í svolitla stund og allar hversdagslegu hugsanirnar eins og „ætti ég að taka pallinn minn í gegn?“ eða „hvenær mun ég hafa tíma til að laga heimasíðuna mína?“ eru búnar að fljóta í gegn um hausinn, er eins og myndir byrji að skjóta upp kollinum og þá byrjar eitthvað að flæða og þær koma í öldum. Það er svo skemmtilegt að finna þær flæða fram og breytast og endurraðast og umbreytast. Þá er ég full af dópamíni og allt getur gerst. Því miður endist sú tilfinning ekki alltaf og stundum þarf ég að gera þetta nokkrum sinnum þangað til að ákvörðunin virðist rétt, sem kemur oftast í ljós nokkrum dögum síðar. Þegar þetta er komið á hreint fer ég að taka ljósmyndir til að vinna eftir. Eftir það er komið að vinnustofunni. Síðast þegar ég hélt sýningu var ég að mála á form úr timbri, og þá var partur af ferlinu að skissa upp áhugaverð form yfir fyrirmyndirnar og svo saga þau form út. Svo vinn ég timbrið eftir kúnstarinnar reglum og eftir það er loksins kominn tími til að mála (það er að segja ef ég er ekki að gera grafíkverk eða eitthvað annað). Ég mála með olíumálningu og er núna komin með vinnustofuna heim í stofu til mín, sem er merkilega næs. Ég mála eftir fyrirmyndinni þangað til að það er eitthvað sniðugt komið á strigann/timbrið, og svo hendi ég fyrirmyndinni út í hafsauga og byrja að mála það sem mér finnst myndin þurfa á að halda. Það er frábærlega gaman, verkin breytast mikið í því skrefi, og það heldur áfram þangað til að það kemur að því að ég finn að verkið er tilbúið.“
Hvað finnst þér skemmtilegast og hvað reynist þér mest krefjandi?
„Mér finnst skemmtilegast þegar ég kemst í flæði, hvort sem það er við að fá hugmyndir eða þegar ég er að mála og rökhugsunin fær að sofna og ég bara geri. Það tala örugglega allir listamenn um það, enda er það geggjuð tilfinning. Að sama leyti er ég mjög hrifin af augnablikinu þegar ég er búin, stundum löngu búin, að vinna sýningu, og ég fatta af hverju ég þurfti að gera hana. Hvað það var sem undirmeðvitundin mín var að reyna að segja mér. Ég veit það sjaldnast fyrirfram og það er merkilegt að skilja það loksins og geta átt í þessu samtali við sjálfa mig. Það sem er mest krefjandi er þegar ég er búin að fá góða hugmynd en svo er hún ekki rétta hugmyndin daginn eftir og ég þarf að byrja upp á nýtt. En þetta venst, ég er farin að þekkja ferlið ágætlega svo ég er ekkert að missa svefn yfir því. Stundum er ég svo svakalega á síðustu stundu með verkin að þau eru blaut á sýningunni. En það stressar mig ekki heldur lengur. Það er mun verra að eiga eftir að kaupa föt til að vera í á opnun og þurfa að ráfa um Glerártorg á síðustu stundu.“
Hvaða verkum ert þú að vinna í núna?
„Ég er að vinna áfram með málverk á óreglulegar timburplötur, mér finnst það spennandi að þróa það áfram. Það þarf ekki allt að vera kassalaga. Já svo styttist í fleiri grafíkverk, ég finn að mig er farið að klæja í fingurnar að gera grafík.“
Hvernig lítur framtíðin út?
„Það veit enginn. Fleiri sýningar, vinna með skemmtilegum listamönnum, prófa nýja hluti og sjá hvert það tekur mig. Mig langar að sýna í Danmörku bráðlega…ég er spennt fyrir allskonar. Það mikilvægasta í þessu öllu er að halda alltaf áfram.“
Í lokin segir Jónína: „Áfram list! Ef þetta var eitthvað sem þú tengir við, finndu mig á instagram, @joninabh, og við getum spjallað. Sérstaklega fólk sem tengir mikið við hafið, fjörur og þara, við þurfum að tengjast!“







Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










