Gengið hefur verið frá ráðningu Jóns Torfa Halldórssonar í starf yfirlæknis nýju Heilsugæslunnar á Akureyri. Jón Torfi er annar yfirlæknanna sem sagt var upp störfum fyrr í haust vegna skipulagsbreytinga hjá HSN.
Jón Torfi útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2000 og lauk sérnámi í heimilislækningum árið 2009. Hann hefur starfað við heilsugæslu á Akureyri lengstan starfsferil sinn og verið yfirlæknir heilsugæslunnar á Akureyri frá 2013.
Heilsugæslan mun flytjast í nýtt húsnæði í Sunnuhlíð í janúar og verður það mikil bót á starfsaðstæðum og aðgengi fyrir almenning.
„Við óskum Jóni Torfa til hamingju með starfið sem og góðs gengis við að vinna að bættri þjónustu á svæðinu í samvinnu við öflugt starfsfólk stofnunarinnar,“ segir í tilkynningu á vef HSN.
UMMÆLI