Jón Þorvaldur og Antje hljóta Grænu kennsluverðlauninMynd/HA

Jón Þorvaldur og Antje hljóta Grænu kennsluverðlaunin

Árið 2024 voru Grænu kennsluverðlaunin veitt í fjórða skiptið. Verðlaunin veitir Umhverfisráð Háskólans á Akureyri . Verðlaunin eru veitt kennurum sem hafa tvinnað umhverfisvernd inn í námskeiðin sín. Audrey Louise Matthews , formaður Umhverfisráðs afhenti verðlaunin fyrir hönd ráðsins.

„Við lítum á Grænu kennsluverðlaunin sem jákvæða hvatningu til kennara til að tengja sjálfbærni við allt okkar umhverfi. Þetta eru kennarar sem með metnaði sínum ná með sinni vísindalegu sérfræðiþekkingu að tengja næstu kynslóðir við eigin skuldbindingu við umhverfið“ segir Audrey á vef HA.

Tveir kennarar hlutu að þessu sinni verðlaun. Antje Neumann, dósent við lagadeild og Jón Þorvaldur, lektor við viðskiptadeild.

Antje hlýtur kennsluverðlaunin fyrir námskeiði í Heimskautarétti. Antje er með doktorsgráðu frá Tilburg háskóla í Hollandi og er í dag búsett á Akureyri. Antje hefur í sínum störfum og rannsóknum lagt áherslu á réttindi frumbyggja á norðurslóðum og náttúruvernd á heimskautasvæðum.

Jón Þorvaldur hefur verið virkur í umræðum og rannsóknum í byggðamálum. Hans helsta sérsvið eru samgöngur, einkum vegsamgöngur en hann hefur einnig verið virkur á sviði grænnar orku og fleiri sviðum. Jón Þorvaldur er með BS próf í eðlisfræði og meistarapróf í hagfræði.

Sambíó
Sambíó