Jólatorg í miðbæ Akureyrar 

Jólatorg í miðbæ Akureyrar 

Sú nýbreytni verður tekin upp á aðventunni á Akureyri í ár að sérstakt Jólatorg með ýmsum jólalegum söluvarningi verður sett upp á Ráðhústorgi. Jólatorgið verður opnað formlega sunnudaginn 1. desember næstkomandi þegar ljósin á jólatrénu verða tendruð. Þetta kemur fram í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Jólatorgið verður opið tvær helgar í desember, 7.-8. og 14.-15. desember, frá klukkan 13-17.Hægt verður að leigja út alls átta sölupláss í fjórum skreyttum einingarhúsum sem munu prýða torgið. Akureyrarbær óskar nú eftir umsóknum frá einstaklingum, samtökum og/eða fyrirtækjum, sem hafa til sölu varning með skýra tengingu við jólahefðir landsmanna. Valið verður úr innsendum umsóknum.

Um er að ræða tvær stærðir af húsum og er leiguverðið 20.000 kr. á söluaðila fyrir hverja helgi í þriggja metra breiðu húsi og 25.000 kr. á söluaðila fyrir hverja helgi í fjögurra metra breiðu húsi. Gert er ráð fyrir að í flestum tilfellum ættu tveir söluaðilar að komast fyrir í einu húsi. Verðið miðast við einn söluaðila og eina helgi. Ekki er rukkað fyrir söluplássin 1. desember.

Áhugasamir sækja um pláss í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar og er opið fyrir umsóknir til og með 6. nóvember nk. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið info@visitakureyri.is.

Sækja um hér.

Sambíó

UMMÆLI