Óskars- og BAFTA verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við kvikmyndina Joker verður flutt á Íslandi á tónleika-bíósýningu af Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord. Stjórnandi verður faðir höfundarins, Guðni Franzson.
Joker fékk tvenn Óskarsverðlaun og þrenn BAFTA verðlaun á þessu ári, þar sem Hildur Guðnadóttir vann fyrir bestu kvikmyndatónlistina og Joaquin Phoenix fyrir bestan leik í aðalhlutverki á báðum verðlaunahátíðum. Bæði hrepptu þau einnig Golden Globe og Critics’ Choice verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar.
Tónlist Hildar Guðnadóttur er þungamiðjan í tilfinningaþrunginni vegferð aðalpersónunnar Arthur Fleck í kvikmyndinni Joker. Frábær blanda af hráum, vélrænum hljóðheimi ásamt áleitnum og undurfögrum strengjatónum, oft einungis selló, skapar undirtón vonar og óbærilegrar spennu. Einstök tónlist Hildar Guðnadóttur öðlast nýtt líf í flutningi SinfoniaNord og framkallar alveg nýja upplifun á Joker, kvikmynd Todd Phillips og margverðlaunaðri túlkun Joaquin Phoenix í aðalhlutverkinu.
Ótrúleg sigurför Jokers á verðlaunahátíðum
Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Eldborg og Hofi með tali og áhrifahljóðum um leið og stór sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord leikur magnþrungna tónlist Hildar.
Velgengni tónskáldsins á undanförnum misserum á sér nær engin fordæmi. Fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl hefur hún hlotið Emmy og Grammy styttur auk fjölda annarra alþjóðlegra verðlauna. Fyrir tónlistina í JOKER bætti hún svo meðal annars við BAFTA verðlaunum og tók nú síðast við sjálfum Óskarnum, fyrst Íslendinga.
Hildur Guðnadóttir: ,,Það er mér mikið ánægjuefni að fá að sjá og heyra Joker á kvikmyndasýningu með lifandi sinfóníuhljómsveit. Hljómsveitin kom með svo mikla dýpt og næmni í flutningi sínum þegar við hljóðrituðum tónlistina. Við bókstaflega héldum í okkur andanum meðan á upptökum stóð. Þetta var svo fallegt ferðalag og það gleður mig mjög að áhorfendur fái nú að njóta þess á sama hátt.”
Leikstjórinn, Todd Phillips: ,,Ég tala fyrir hönd okkar allra þegir ég lýsi ánægju minni með að JOKER verði sýnd á kvikmyndatónleikum. Að mínu mati er það frábær leið fyrir áhorfendur til að upplifa áleitna tónlist Hildar Guðnadóttir og verða vitni að för Joaquin Phoenix í heim geðveikinnar í hlutverki Arthurs.”
JOKER – LIVE IN CONCERT verður sýnt víða um Evrópu nú í vor á vegum enska viðburðafyrirtækisins Senbla. SinfoniaNord náði nýverið samningum um að flytja stórkostlega tónlist Hildar í Eldborg á Hvítasunnudag, 31. maí og í Hofi 13. júní.
UMMÆLI