MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Jóhanna Guðrún leikur Velmu í Chicago

Eftir Ingólfur Stefánsson·
yohanna
kaffid.is

Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir leikur Velmu í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á heimsfræga söngleiknum Chicago.

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi.

Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.

Jóhanna segist alltaf hafa haldið upp á söngleikinn. „Það er algjör daumur fyrir mig að fá tækifæri til að leika Velmu,“ segir söngkonan.

Söngleikurinn Chicago verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í janúar 2023. Nú er hægt að kaupa miða á forsölutilboði á mak.is.

View this post on Instagram A post shared by Yohanna – Jóhanna Guðrún (@yohannamusic)

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026