Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Johan Rönning færir VMA gjöf

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
1790189151_for
Ljósmynd: VMA· kaffid.is

Í þessari viku færði Ágúst Axelsson, viðskiptastjóri Johan Rönning á Akureyri, rafiðnbraut VMA nokkra kassa af ýmsum búnaði og efni að gjöf frá fyrirtækinu. Andrea Margrét Þorvaldsdóttir, kennari á rafiðnbraut, og Ásta F. Flosadóttir, aðstoðarskólameistari VMA tóku á móti gjöfinni.

„Það er rafiðnbraut og Verkmenntaskólanum ómetanlegt að fá slíkan stuðning úr atvinnulífinu. Fyrir hann og þessa höfðinglegu gjöf færir skólinn Johan Rönning innilegar þakkir,“ segir í tilkynningu frá VMA.

Það sem kom upp úr gjafakössunum frá Rönning:

3 DeWalt hleðsluborvélar.

1 DeWalt hitabyssa.

100 endastopp

100 endaplötur

450 raðtengi

10 tvöfaldir plejd dimmar

10 einfaldir plejd dimmar

10 plejd relay

10 tvöföld plejd relay

4 plejd hitastillar

2 samskiptabrýr

4 rafhlöðubankar

4 innfelld plejd ljós

3 niplatangir

3 gráðusköfur

48 pör af vinnuvettlingum

Tengibrýr í raftengi

Tengdar greinar

Uppfært: 25. september 2026