Jens Garðar leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Jens Garðar leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 30. nóvember nk. var samþykkt á fundi kjördæmisráðs í Skjólbrekku í Mývatnssveit í gær.

Jens Garðar Helgason mun leiða listann en hann bauð sig fram í oddvitasætið og hafði betur gegn sitjandi oddvita, Njáli Trausta Friðbertssyni. Njáll Trausti hafði betur í kosningu um annað sæti listans gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, þingmanni, um annað sætið.

Berglind Ósk ákvað að gefa ekki kost á sér í önnu sæti á listanum. Berglind Harpa Svavarsdóttir mun því taka 3. sætið á lista flokksins.
Framboðslistinn í heild sinni:

1. Jens Garðar Helgason, Fjarðabyggð
2. Njáll Trausti Friðbertsson, Akureyri 
3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, Múlaþingi
4. Jón Þór Kristjánsson, Akureyri 
5.  Telma Ósk Þórhallsdóttir, Akureyri 
6.  Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, Dalvíkurbyggð
7.  Þorsteinn Kristjánsson, Akureyri 
8.  Hafrún Olgeirsdóttir, Norðurþing
9. Barbara Izabela Kubielas, Fjarðabyggð
10. Baldur Helgi Benjamínsson, Eyjafjarðarsveit
11. Jóna Jónsdóttir, Akureyri 
12. Einar Freyr Guðmundsson, Múlaþingi
13. Auður Olga Arnarsdóttir, Dalvíkurbyggð
14. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, Fjallabyggð
15. Vilmundur Aðalsteinn Árnason, Akureyri 
16. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Fjarðabyggð
17. Freydís Anna Ingvarsdóttir, Þingeyjarsveit
18. Tómas Atli Einarsson, Fjallabyggð 
19.  Kristinn Frímann Árnason, Hrísey
20.  Helgi Ólafsson, Norðurþingi

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó