NTC

Jana Salóme leiðir lista VG á Akureyri

Jana Salóme leiðir lista VG á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir mun leiða lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosingum. Jana hlaut 68 atkvæði í 1. sæti í rafrænu forvali VG á Akureyri.

Forvalið fór fram 2. til 5. mars. Valið var í 6 efstu sætin í forvali á Akureyri og er kosning bindandi með þeim fyrirvörum sem forvalsreglur Vinstri grænna segja til um, að ekki halli á konur.

Í efstu sætum á Akureyri urðu.

  1. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, 68 atkvæði í 1. sæti (62%)
  2. Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, 80 atkvæði í 1. – 2. sæti (73%)
  3. Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri
  4. Hermann Arason, framkvæmdastjóri
  5. Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari
  6. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi

Níu voru í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna á Akureyri. Þau voru í framboði:

Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, í 1. sæti
Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, í 3. sæti
Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, í 6. sæti
Hermann Arason, framkvæmdastjóri, í 2.-4. sæti
Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, í 6. sæti
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, í 1. sæti
Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, í 2. sæti
Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, í 2.-6. sæti
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, 4.-6. sæti

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó