MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Jákvæð sálfræði – meira en bara hugtak

Eftir Hrönn Bessadóttir·
hronn
kaffid.is

Í dag fagna ég 50 ára afmæli. Tímamót sem þessi fá mann óneitanlega til að staldra aðeins við, líta yfir farinn veg og velta fyrir sér hvað það er sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Hvað er það sem gerir lífið gott, gefur því gildi og hjálpar okkur að líða vel – líka þegar lífið reynir á?

Þessar spurningar hafa verið mér hugleiknar undanfarið, ekki síst í tengslum við það sem ég hef lært í jákvæðri sálfræði. Á þessum tímamótum langar mig því að deila nokkrum hugleiðingum um vellíðan og þau einföldu atriði sem geta haft áhrif á það hvernig við upplifum lífið.

Jákvæð sálfræði, hvað er það eiginlega?

Er þetta eitthvað tískunám sem fólk leitar í þegar streitan er orðin of mikil og orkuleysið tekið yfir? Kannski eftir að hafa keyrt sig áfram aðeins of lengi eða lent á „veggnum“ og reynt að ná aftur tökum á lífinu.

En nei, jákvæð sálfræði er ekki skyndilausn eða „trend“. Hún byggir á áratuga rannsóknum á því hvað gerir lífið þess virði að lifa og hvað hjálpar okkur að blómstra sem manneskjur.

Leyfið mér að útskýra aðeins nánar hvað jákvæð sálfræði er og fyrir hverja hún er.

Síðastliðinn vetur stundaði ég nám í jákvæðri sálfræði, á sama tíma og ég sjálf þurfti að staldra við og endurmeta hvað skiptir mig raunverulega máli. Námið kenndi mér ótrúlega margt, ekki bara fræði heldur líka margt um sjálfa mig. Það er ekki bara fræðilegt heldur byggir það að miklu leyti á reynslunámi þar sem við skoðum eigin líðan, áskoranir, styrkleika og vöxt. Ég hef haft þá lukku að fá að læra af kennurum sem eru leiðandi á þessu sviði, bæði hér heima og erlendis, og það hefur opnað fyrir mér nýja sýn á það hvað raunverulega skiptir máli í lífinu.

Í jákvæðri sálfræði er áherslan ekki bara á að draga úr vanlíðan heldur að byggja upp vellíðan. Ein þekktasta nálgunin í jákvæðri sálfræði er svokallað PERMA-líkan sem lýsir því hvað styður við vellíðan. Það felur meðal annars í sér jákvæðar tilfinningar, tengsl við aðra, að gleyma sér í því sem maður er að gera, að finna tilgang og upplifa árangur.

Jákvæð sálfræði snýst þó ekki aðeins um einstaklinginn. Hún á líka erindi við samfélagið í heild. Árið 1968 benti Robert F. Kennedy á að landsframleiðsla mæli nær allt nema það sem gerir lífið þess virði að lifa því. Þessi orð eiga enn vel við í dag. Þau minna okkur á að vellíðan snýst ekki bara um árangur eða afköst heldur um hvernig okkur líður, hvernig við tengjumst öðrum og hvort við finnum merkingu í lífinu.

Þegar við erum undir miklu álagi gleymum við oft einföldustu hlutunum sem skipta mestu máli. Ég hef sjálf upplifað hvernig álag getur tekið yfir þar til maður áttar sig á að maður er hættur að hlusta á sjálfan sig. Þá verða einföld verkfæri úr jákvæðri sálfræði ekki bara fræði heldur raunveruleg hjálp.

Sjálfsmildi er eitt af því sem skiptir miklu máli. Hún felst í því að mæta sjálfum sér af meiri hlýju í stað þess að vera stöðugt gagnrýnin á eigin frammistöðu. Að staldra við og spyrja sig hvað maður myndi segja við góðan vin í sömu stöðu getur breytt miklu.

Núvitund hjálpar okkur að færa athyglina aftur í augnablikið. Að vera meira til staðar í því sem er að gerast hér og nú í stað þess að vera stöðugt að hugsa um næsta verkefni eða velta sér upp úr fortíðinni. Stundum er nóg að staldra við og anda aðeins dýpra.

Tengsl við aðra eru einn sterkasti áhrifaþátturinn á vellíðan. Rannsóknir sýna að góð og nærandi tengsl eru meðal þess sem hefur mest áhrif á hamingjusamt og innihaldsríkt líf.

Á sama tíma bendir nýleg skýrsla frá landlækni Bandaríkjanna (2023) til þess að einmanaleiki sé orðinn að alvarlegu lýðheilsuvandamáli. Þar kemur fram að um helmingur fullorðinna upplifi einmanaleika og að skortur á tengslum geti haft jafn skaðleg áhrif á heilsu og að reykja allt að 15 sígarettur á dag.

Það er því kannski mikilvægara en nokkru sinni fyrr að rækta tengslin okkar.

Kannski byrjar það á einföldum hlutum. Að taka upp símann og hringja í einhvern, staldra við og heilsa eða kíkja í heimsókn og gefa sér tíma til að spjalla um daginn og veginn. Smá skref sem geta haft meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir.

Þakklæti er einfalt en áhrifaríkt. Að æfa sig í að taka eftir því sem er gott, jafnvel í litlum hlutum dagsins, getur smám saman breytt því hvernig við upplifum lífið. Þegar við erum undir álagi beinist athyglin oft sjálfkrafa að því sem er erfitt eða vantar. Þakklæti hjálpar okkur að færa fókusinn, ekki með því að neita erfiðleikum heldur með því að sjá að það er líka eitthvað sem er gott á sama tíma.

Og svo eru það styrkleikarnir okkar. Það sem við erum góð í og gefur okkur orku. Þegar við nýtum styrkleikana okkar meira í daglegu lífi eykst bæði sjálfstraust og vellíðan og við finnum frekar að við séum í okkar rétta farvegi.

Þetta er aðeins brot af því sem ég lærði í náminu. Verkfæri sem eru í senn einföld og aðgengileg en geta haft meiri áhrif en við áttum okkur á.

Það sem stendur kannski upp úr þegar ég lít til baka á þetta nám eru þó tengslin sem hafa myndast. Samnemendur sem ég hef deilt hugsunum, reynslu og tilfinningum með og sem eru komnir til að vera. Vinir sem setja smá glimmer í lífið og minna mig á hvað tengsl skipta miklu máli.

Það sem ég tek með mér úr jákvæðri sálfræði er að vellíðan snýst ekki um að gera allt fullkomlega. Hún snýst um litlar, meðvitaðar breytingar sem safnast upp með tímanum.

Kannski byrjar það bara á einu augnabliki í dag. Að anda aðeins dýpra, sýna sér meiri mildi eða hafa samband við einhvern sem skiptir þig máli.

Hrönn Bessadóttir lauk diplómanámi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2026.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026