Jakob Snær framlengir við KA
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Á vef KA kemur fram að Jakob Snær Árnason og Knattspyrnudeild KA hafa gert með sér nýjan samning sem gildir út sumarið 2029. Jakob sem kemur frá Siglufirði er 29 ára gamall og hefur leikið með KA frá sumrinu 2021. Hann varð Bikarmeistari með KA sumarið 2024 og tók þátt í Evrópuævintýrinu 2023. Jakob lék sinn 100. leik fyrir KA í deild, bikar og evrópu í sumar en alls eru leikirnir orðnir 117 talsins og mörkin orðin 20. Nú er ljóst að leikirnir verða töluvert fleiri og eru samkvæmt vef KA eru KA-menn afar spenntir fyrir því að halda þessum öfluga kappa innan sinna raða.
„Eru þetta ákaflega góðar fréttir enda hefur Jakob verið frábær fyrir KA frá komu sinni í félagið sumarið 2021,“ segir á vef KA.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. september 2026





