MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Ivan Mendez nýr söngvari Dimmu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
dimma-ivan
kaffid.is

Akureyringurinn Ivan Mendez er nýr söngvari þunarokkssveitarinnar Dimmu. Hann fyllir skarð Stefáns Jakobssonar í sveitinni vinsælu en Stefán hætti í sveitinni fyrr í ár. Dimma vinnur nú að sinni sjöundu breiðskífu og í dag kom fyrsta lagið af henni út.

Hljómsveitin greindi frá fréttunum í tilkynningu á samfélagsmiðlum í dag:

„DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali!
Lagið er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í 5 ár og gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á frá sveitinni á sjöundu breiðskífu okkar, sem nú er í vinnslu og væntanleg á næsta ári. DIMMA eru Ivan Mendez söngvari, Skúli Gíslason trommuleikari, Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari.“

Skarkali! er nú á öllum helstu streymisveitum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026