Íþróttabandalag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli sínu 20. desember næstkomandi. Af því tilefni verður sannkölluð íþróttahátíð í Boganum á Akureyri laugardaginn 7.desember. Hátíðin verður sett með stuttu ávarpi formanns ÍBA klukkan 13:00 og hátíðin sjálf stendur til 17:00.
Innan vébanda ÍBA eru tuttugu íþróttafélög og munu flest þeirra vera á staðnum og kynna starfsemi sína og leyfa gestum og gangandi að prufa hinar ýmsu íþróttagreinar en innan aðildarfélaga ÍBA eru hátt í 50 íþróttagreinar. Auk þess mæta nokkrir góðir gestir í Bogann sem munu halda uppi fjörinu og boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti.
Þennan sama dag á Íþróttafélagið Akur, sem er eitt af aðildarfélögum ÍBA, einmitt líka stórafmæli en félagið fagnar 50 ára afmæli sínu þennan dag og verður því fagnað sérstaklega á hátíðinni.
Dagskráin er í mótun og verður kynnt betur þegar nær dregur ÍBA hvetur alla til að fylgjast vel með á heimasíðu sinni og einnig á Facebook og Instagram síðum ÍBA. Frítt verður inn fyrir alla.
UMMÆLI