Mánudaginn 30. mars opnar Íslenska gámafélagið nýjar starfsstöðvar á Ægisnesi 3 á Akureyri. Fyrirtækjum á Norðurlandi er boðið í opnunarpartí föstudaginn 27. mars á svæði Íslenska gámafélagsins.
Í fréttatilkynningu segir að með opnuninni muni þjónusta við Norðurland stórbætast og að nú muni hefjast útflutningur á almennum heimiliúrgang beint frá Akureyri í fyrsta skipti.
Úrgangurinn mun fara til endurvinnslu og orkunýtingar í Evrópu í stað urðunar á Sölvabakka. Af þessu hlýst mikill umhverfislegur ávinningur þar sem orkan er nýtt til kyndingar á heimilum í Evrópu. Á árinu verður einnig ný vinnslulína fyrir gler sett upp á svæðinu þar sem að allt umbúðagler verður meðhöndlað og er það einnig í fyrsta skipti sem slíkt er gert á Norðurlandi.
Jón Þórir Frantzson forstjóri Íslenska gámafélagsins er spenntur fyrir komandi tímum
„Við hlökkum til að kynnast norðlenskum fyrirtækjum betur og viljum gera okkar besta til að veita framúrskarandi þjónustu í sorphirðu og úrgangsmálum á Norðurlandi. Með bættri aðstöðu okkar á Akureyri og samstilltu átaki mun okkur takast að draga mikið úr þeim umhverfisáhrifum sem urðun úrgangs hefur í för með sér,“ segir hann.










