Íslensk tónlistarsaga kynnt fyrir nýrri kynslóð

Undanfarið hefur Daníel Andri Eggertsson, tónlistarmaður- og kennari á Akureyri, verið að framleiða stutta heimildaþætti um íslenskt tónlistarfólk fyrri ára, þar sem markmiðið er að gera íslenska tónlistarsögu aðgengilega fyrir nýja kynslóð. Efnið er framleitt aðallega fyrir TikTok en birtist þó á fleiri miðlum. Verkefnið mun svo þróast yfir í hlaðvarpsþætti á næstunni.
Nú þegar hafa myndböndin fengið tugi þúsunda áhorfa og góðar viðtökur frá fólki á öllum aldri.
Það sem kemur Daníel á óvart er hversu lítið sumir krakkar vita um íslenska tónlist og verkefnið er ætlað að hvetja fólk til þess kynna sér efnið nánar og tengja meira við söguna heldur en að leyfa algóryþmanum á Spotify að stjórna smekknum.
Sömuleiðis hefur Daníel í samtölum sínum við eldra fólk komist að því að það er mikill áhugi fyrir umfjöllun um tónlistarfólk fyrri ára, fyrir þau að endurupplifa og njóta. Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem strákarnir í Gonzo. Creation spjalla við Daníel um verkefnið.
Hlekkur að rás Daníels á tiktok – https://www.tiktok.com/@dandrimusic
Tengdar greinar
Uppfært: 10. október 2026





