HM kvenna í íshokkí lauk í Skautahöll Akureyrar í kvöld með leik Íslands og Spánar en leikurinn endaði með 1-3 sigri þeirra spænsku.
Akureyringurinn Eva María Karvelsdóttir gerði eina mark Íslands í leiknum.
Lokastaða mótsins er því eftirfarandi
- Mexíkó 12 stig
- Spánn 11 stig
- Nýja-Sjáland 10 stig
- Ísland 6 stig
- Tyrkland 6 stig
- Rúmenía 0 stig
Ákveðin vonbrigði fyrir íslenska liðið sem ætlaði sér stærri hluti á mótinu. Töp liðsins gegn toppliði Mexíkó og Nýja-Sjálandi voru afar svekkjandi og vantaði ekki meira en herslumun upp á að Íslandi tækist að enda töluvert ofar í töflunni.
UMMÆLI