Ingvar stefnir á forystusætið fyrir Viðreisn

Ingvar Þóroddsson tilkynnti um helgina að hann stefni á forystusæti í Norðausturkjördæmi fyrir Viðreisn. Hann sé vel til þess fallinn að tryggja flokknum þingsæti í kjördæminu og tala máli kjósenda í landshlutanum.

Ingvar er 26 ára Akureyringur, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og lærði verkfræði við Háskóla Íslands og Berkeley háskóla í Kaliforníu. Hann sneri þaðan heim til Akureyrar eftir lok meistaranáms og kennir í dag stærðfræði og eðlisfræði við MA. Foreldrar Ingvars eru Þóroddur Ingvarsson og Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir, læknar á sjúkrahúsinu á Akureyri.

„Mín grunngildi hafa nokkurn veginn alltaf verið þau sömu. Ég trúi á frelsi einstaklingsins, sterkt markaðshagkerfi, alþjóðasamstarf og að samfélagið skuli tryggja öllum jöfn og góð tækifæri,“ segir í tilkynningu frá Ingvari sem horfir björtum augum fram á veginn.

Hann segist jafnframt ætla að leggja áherslu á menntamál en staðan í þeim málaflokki, sem birtist meðal annars í PISA-könnunum og læsi íslenskra barna við lok grunnskólagöngu, veldur honum áhyggjum. Hann telur reynsluna af kennarastarfinu vera gott veganesti í að takast á við það verkefni og segist hlakka til að eiga samtalið við fólk í kjördæminu. 

Ingvar vermdi þriðja sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningunum 2021. Frá þeim tíma hefur Ingvar sinnt trúnaðarstörfum innan flokksins og var til að mynda kjörinn varaforseti ungliðahreyfingar flokksins haustið 2021 og hefur setið í Norðausturráði Viðreisnar síðan 2022. 

Hann segir það fagnaðarefni að tími þessarrar ríkisstjórnar sé liðinn. Kjörtímabilið hafi einkennst af óreiðu í ríkisfjármálum og óeiningu, sem hafi leitt til hárrar verðbólgu og vaxta, en það bitnar ekki síst á ungu fólki og barnafjölskyldum. Þá hafi orkumálum verið haldið í gíslingu í samstarfi ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Allt þetta komi niður á almenningi og fyrirtækjum í landinu. 

„Ég vil leggja mitt af mörkum svo hér geti tekið við ríkisstjórn með Viðreisn innanborðs, sem hefur frjálslynd gildi að leiðarljósi, tekst á við verðbólguna og ryður hindrunum úr vegi fólks og fyrirtækja, í stað þess að búa þær til,“ bætir Ingvar inn.

Ingvar sér mikil tækifæri í Norðausturkjördæmi og telur mikilvægt að kjördæmið hafi öfluga og fjölbreytta málsvara á þingi. „Ég ætla mér að vera öflugur fulltrúi Norðausturkjördæmis, Viðreisnar, og ungs fólks og barnafjölskyldna um land allt, hljóti ég umboð flokksins og kjósenda til þess.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!