Framboðslistar Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á fundi landshlutaráðs flokksins í dag. Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Þetta segir í fréttatilkynningu frá flokknum í dag.
Í öðru sæti er Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningamála á Egilsstöðum. Þriðja sætið skipar Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari á Akureyri og í fjórða sæti er Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar. Hjálmar Pálsson, sölustjóri hjá Hnýfli, reykhús/fiskvinnslu skipar fimmta stæði og Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri skipar það sjötta.
„Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt og þann stuðning sem ég hef fengið frá fólki hvaðan af úr kjördæminu. Þetta er gríðarlega öflugur listi og ég er spenntur fyrir því að heyja þessa kosningabaráttu. Sérstaklega fyrir þau sem eru að kaupa sér sitt fyrsta húsnæði, stofna fjölskyldu og jafnvel fyrirtæki. Fólkið sem vill skapa verðmæti fyrir sig og sitt nærsamfélag. Ég vil beita mér fyrir þennan hóp,“ segir oddvitinn í tilkynningu.
Ingvar bætir við: „Mér finnst oft gleymast að fólk hefur líka möguleika á að kjósa með fótunum og það þekkja eflaust allir ungt vel menntað fólk sem hefur ílengst erlendis eftir nám einfaldlega vegna þess að þeim finnst ekki vænlegur kostur að flytja heim, meðal annars vegna hárra vaxta og verðbólgu. Það er staða sem við megum ekki sætta okkur við.“
Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi:
- Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari, Akureyri
- Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga og kynningarmála, Egilsstaðir
- Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari, Akureyri
- Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar, Hrísey
- Hjálmar Pálsson, sölustjóri Hnýfill reykhús/fiskvinnsla, Akureyri
- Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri, Akureyri
- Páll Baldursson, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Egilsstaðir
- Dusanka Kotaras, matráður Giljaskóla, Akureyri
- Davíð Brynjar Sigurjónsson, kennari, Eskifirði
- Rut Jónsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og úrgangsmála, Akureyri
- Eyþór Möller Árnason, samskiptafulltrúi, Grenivík
- Urður Arna Ómarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Seyðisfjarðarskóla, Seyðisfjörður
- Ari Erlingur Arason, söngvari, Húsavík
- Halla Rut Ákadóttir, háskólanemi, Akureyri
- Björn Grétar Baldursson, flugumferðarstjóri, Akureyri
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, þroskaþjálfi og stjórnsýslufræðingur, Reyðarfjörður
- Valtýr Þór Hreiðarsson, rekstrarhagfræðingur, Akureyri
- Draumey Ósk Ómarsdóttir, stuðningur á leikskóla og háskólanemi, Reykjavík
- Guðmundur Aðalsteinsson, skógarbóndi, Egilsstöðum
- Ólöf Yrr Atladóttir, framkvæmdastjóri, Siglufjörður
UMMÆLI