MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Ingibjörg Sigurðardóttir heldur síðasta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins

Eftir Ritstjórn·
Ingibjörg Sigurðardóttir heldur síðasta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins
Ingibjörg Sigurðardóttir.

Þriðjudaginn 21. mars kl. 17-17.40 heldur Ingibjörg Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur, síðasta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Fjölskylduarfleið: ljósmyndir, frásagnir og erfiminni. Aðgangur er ókeypis.

Fjölskyldan er ein af grundvallarstoðum samfélagsins og innan hennar viðgengst ákveðin menning sem lítur að sameiginlegum uppruna, minningum og viðhaldi hefða. Með aukinni almenningseign á myndavélum hafa ljósmyndir farið að leika stærra hlutverk í þessu samhengi. Í fyrirlestrinum fjallar Ingibjörg um fjölskyldumenningu og sameiginlegar minningar í sambandi við ljósmyndir og frásagnir þeim tengdum í samhengi við eigin fjölskyldusögu þar sem amma hennar og nafna, Ingibjörg Steinsdóttir, leikkona (1903-1965), gegnir aðalhlutverki.

Ingibjörg Sigurðardóttir er með MA-próf í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún hefur kennt við Háskólann á Akureyri í yfir tíu ár, bæði innan félagsvísinda- og lagadeildar og kennaradeildar. Síðustu ár hefur hún einkum kennt íslensku sem annað mál og íslenskar bókmenntir fyrir erlenda skiptinema við skólann. Í rannsóknum sínum hefur hún aðallega beint sjónum að æviskrifum og notkun persónulegra heimilda.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Þetta er síðasti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins, en fyrirlestraröðin hefst að nýju í september.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026